Fotbolti.net
10.08.23 - 11:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Edson Alvarez sá fyrsti sem West Ham kaupir í sumar (Staðfest)

Edson Alvarez.

Edson Alvarez.

Canon

Mynd: West Ham

West Ham hefur loksins keypt sinn fyrsta leikmann í sumar; Edson Alvarez er kominn til félagsins frá Ajax.

Kaupverðið fyrir Alvarez er um 35 milljónir punda en leikmaðurinn skrifar undir fimm ára samning við Lundúnafélagið.
Alvarez leikur sem varnarsinnaður miðjumaður og á að fylla í skarðið sem Declan Rice skilur eftir sig. Rice var í sumar seldur til Arsenal og varð þá dýrasti leikmaður í sögu enska boltans þar sem hann kostaði 105 milljónir punda.

Alvarez er 25 ára gamall og hefur verið mikilvægur hlekkur í sterku liði Ajax og landsliði Mexíkó undanfarin ár.

Núna á næstu dögum mun West Ham líka ganga frá kaupum á varnarmanninum Harry Maguire og miðjumanninum James Ward-Prowse; félagið hefur allavega sent inn tilboð í þessa leikmenn sem hafa verið samþykkt.

Sjá einnig:
Spáin fyrir enska - 10. sæti: „Staðið með mínu liði gegnum súrt og sætt í rúm 50 ár"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.