Sander Berge til Burnley (Staðfest)

Sander Berge.

Mynd: Burnley

Sander Berge.

Mynd: Burnley
Burnley hefur gengið frá kaupum á norska miðjumanninum Sander Berge. Hann kemur til félagsins frá Sheffield United.
Þetta eru ansi athyglisverð kaup í ljósi þess að Burnley og Sheffield United eru nýliðar og munu mögulega berjast við hvort annað í neðri helmingi deildarinnar. Berge átti eitt ár eftir af samningi sínum við Sheffield United og félagið hafði áhyggjur af því að missa hann frá sér á frjálsri sölu.

Berge var einn af lykilmönnum Sheffield United en Burnley borgar fyrir hann um 15 milljónir punda.
Berge skrifar undir fjögurra ára samning við Burnley en hann kemur til með að styrkja liðið talsvert.
Berge er annar lykilmaðurinn sem Sheffield United missir í sumar því liðið hefur þegar misst sinn helsta markaskorara, Iliman Ndiaye, til Marseille.

i'm lovin' it ???? pic.twitter.com/DTPqxWFHKE
— Burnley FC (@BurnleyOfficial) August 9, 2023