Chelsea sendir Ângelo til Strasbourg (Staðfest)

Franska félagið RC Strasbourg er í eigu Todd Boehly, eiganda Chelsea, og er búið að tryggja sér Ângelo Gabriel á lánssamningi frá enska stórveldinu.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24446 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Franska félagið RC Strasbourg er í eigu Todd Boehly, eiganda Chelsea, og er búið að tryggja sér Ângelo Gabriel á lánssamningi frá enska stórveldinu.

Tottenham hefur gengið frá kaupum á argentínska ungstirninu Alejo Veliz frá Rosario Central.
Beitir Ólafsson, fyrrum markvörður KR, Keflavíkur, HK og fleiri liða, hefur fengið félagaskipti frá KR til Gróttu. Hann kemur til með að verja mark liðsins í kvöld þegar Grótta fær ÍA í heimsókn í Lengjudeildinni. Ekki stendur til að að svo stöddu að Beitir spili fleiri leiki með Gróttu.
Tottenham er búið að gefa það út að félagið hafi gengið frá kaupum á varnarmanninum Micky van de Ven. Það er talið að kaupverðið verði allt að 50 milljónir evra fyrir þennan 22 ára gamla hollenska miðvörð. Hann skrifar undir samning við Tottenham sem gildir til 2029 og mun klæðast treyju númer 37 hjá félaginu.
Newcastle United hefur keypt varnarmanninn Tino Livramento frá Southampton. Kaupverðið gæti náð 40 milljónum punda með árangurstengdum greiðslum. Livramento er tvítugur og hefur skrifað undir fimm ára samning.

Ainsley Maitland-Niles er genginn til liðs við franska liðið Lyon og gerir fjögurra ára samning. Hann kemur á frjálsri sölu.

Portúgalski framherjinn Goncalo Ramos er genginn til liðs við PSG. Hann kemur til félagsins á láni. PSG getur fest kaup á honum fyrir 75 milljónir evra.
Anton Söjberg er genginn í raðir HK en hann gerir samning út árið 2024.

Yann Sommer er genginn til liðs við Inter frá Bayern Munchen en kaupverðið er talið vera í kringum 6 milljónir evra.

Ítalska félagið Atalanta hefur fest kaup á framherjanum Gianluca Scamacca frá West Ham fyrir 28 milljónir punda.
Ítalíumeistarar Napoli hafa staðfest kaupin á brasilíska miðverðinum Natan en hann kemur frá Red Bull Bragantino í Brasilílu.

Fylkir staðfesti í dag að Óskar Borgþórsson framherji liðsins hafi verið seldur til Sogndal í Noregi og samið við félagið til þriggja ára.

Tottenham hefur staðfest komu Ashley Phillips frá Blackburn en hann skrifar undir fimm ára samning við félagið.

Kólumbíski varnarmaðurinn Yerry Mina skrifaði í dag undir eins árs samning við ítalska félagið Fiorentina.
Brasilíski leikmaðurinn Matheus Franca er genginn til liðs við Crystal Palace frá Flamengo.
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United hefur staðfest kaupin á danska framherjanum Rasmus Höjlund en hann kemur frá Atalanta fyrir 72 milljónir punda.
Manchester City hefur staðfest kaup á króatíska varnarmanninum Josko Gvardiol frá RB Leipzig. Hann er keyptur á 77 milljónir punda og er næst dýrasti varnarmaður sögunnar, á eftir Harry Maguire sem Manchester United keypti á 80 milljónir punda frá Leicester 2019. Gvardiol er 21 árs og kom til Leipzig frá Dinamo Zagreb í júlí 2021. „Ég hef alltaf átt mér þann draum að spila einn daginn í enska boltanum. Að koma til Manchester City, eftir tímabilið sem þeir áttu, er sannur heiður fyrir mig," segir Gvardiol sem er talinn einn besti miðvörður heims. Gvardiol hefur spilað 21 landsleik fyrir Krótaíu og var frábær á HM þegar hann hjálpaði þjóð sinni að fá bronsverðlaun. Hann mun klæðast treyju númer 24 hjá Manchester City. „Allir sem horfðu á Manchester City spila á síðasta tímabili vita að það er besta lið heims. Að fá tækifæri til að vinna með Pep Guardiola er magnað. Ég veit að ég get orðið enn betri og er viss um að leikur minn muni þróast undir besta þjálfaranum í fótboltanum."
Chelsea hefur gengið frá 25 milljóna punda kaupum á spænska markverðinum Robert Sanchez frá Brighton & Hove Albion. Þessi 25 ára leikmaður gerir sjö ára samning á Brúnni. Sanchez lék 23 leiki fyrir Brighton á síðasta tímabili, áður en hann missti byrjunarliðssætið til Jason Steele.

Japanski sóknarmaðurinn Daichi Kamada er genginn til liðs við Lazio á frjálsri sölu en hann kemur til liðsins frá Frankfurt. Hann fagnar 27 ára afmæli sínu í dag.

Talið er að hann skrifi undir tveggja ára samning við félagið.

Reynsluboltinn James McClean er genginn til liðs við Wrexham frá Wigan.