Robert Sanchez í Chelsea (Staðfest)

Mættur í höfuðborgina.

Mynd: Chelsea

Mættur í höfuðborgina.

Mynd: Chelsea
Chelsea hefur gengið frá 25 milljóna punda kaupum á spænska markverðinum Robert Sanchez frá Brighton & Hove Albion. Þessi 25 ára leikmaður gerir sjö ára samning á Brúnni.
Sanchez lék 23 leiki fyrir Brighton á síðasta tímabili, áður en hann missti byrjunarliðssætið til Jason Steele.
Sanchez lék 23 leiki fyrir Brighton á síðasta tímabili, áður en hann missti byrjunarliðssætið til Jason Steele.
„Robert er góður gæi og virkilega góður markmaður, en í starfi þjálfarans þarf stundum að taka erfiðar og sársaukafullar ákvarðanir fyrir liðið. Ég óska honum það besta í framtíðinni," sagði Roberto de Zerbi, stjóri Brighton.
Sanchez mun veita landa sínum Kepa Arrizabalaga samkeppni hjá Chelsea, eftir að senegalski markvörðurinn Edouard Mendy fór í sumar til Al-Ahli í Sádi-Arabíu.
Sanchez er fimmti leikmaðurinn sem Chelsea fær í sumar en liðið býr sig undir fyrsta tímabilið undir stjórn Mauricio Pochettino.

‘Can’t wait to get started!’ ???? pic.twitter.com/5aDbDwRv1n
— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 5, 2023