Fotbolti.net
08.08.23 - 19:15
Ívan Guðjón Baldursson

Chelsea sendir Ângelo til Strasbourg (Staðfest)

Chelsea sendir Ângelo til Strasbourg (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franska félagið RC Strasbourg er í eigu Todd Boehly, eiganda Chelsea, og er búið að tryggja sér Ângelo Gabriel á lánssamningi frá enska stórveldinu.

Chelsea keypti Angelo frá brasilíska félaginu Santos fyrr í sumar en hann er aðeins 18 ára gamall og hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Santos í tvö ár.

Hann er yngsti leikmaður í sögu brasilísku deildarinnar auk þess að vera yngsti markaskorari í sögu suður-amerísku Meistaradeildarinnar, Copa Libertadores.

Angelo leikur sem hægri kantmaður að upplagi og er hann örvfættur.

Hann á yfir 100 leiki að baki fyrir Santos auk þess að eiga 15 leiki fyrir yngri landslið Brasilíu, þar af þrjá fyrir U20 liðið þrátt fyrir ungan aldur.

Ângelo Gabriel er þriðji leikmaðurinn til að ganga til liðs við Strasbourg í sumar eftir að liðið forðaðist fall úr efstu deild á síðustu leiktíð. 

Strasbourg er búið að kaupa tvo unga leikmenn fyrir tæplega 40 milljónir evra í sumar, miðvörðinn Abakar Sylla frá Club Brugge og framherjann Emanuel Emegha frá Sturm Graz.

Þeir eru báðir tvítugir og hafa verið eyrnamerktir sem mögulegir framtíðarleikmenn fyrir Chelsea, takist þeim að láta ljós sitt skína í franska boltanum.


Chelsea sendir Ângelo til Strasbourg (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.