Fotbolti.net
05.08.23 - 09:19
Elvar Geir Magnússon

Gvardiol kominn til Man City (Staðfest)

Tekur sig vel út í ljósbláu.

Tekur sig vel út í ljósbláu.

Canon

Mynd: Manchester City

Manchester City hefur staðfest kaup á króatíska varnarmanninum Josko Gvardiol frá RB Leipzig. Hann er keyptur á 77 milljónir punda og er næst dýrasti varnarmaður sögunnar, á eftir Harry Maguire sem Manchester United keypti á 80 milljónir punda frá Leicester 2019.

Gvardiol er 21 árs og kom til Leipzig frá Dinamo Zagreb í júlí 2021.

„Ég hef alltaf átt mér þann draum að spila einn daginn í enska boltanum. Að koma til Manchester City, eftir tímabilið sem þeir áttu, er sannur heiður fyrir mig," segir Gvardiol sem er talinn einn besti miðvörður heims.

Gvardiol hefur spilað 21 landsleik fyrir Krótaíu og var frábær á HM þegar hann hjálpaði þjóð sinni að fá bronsverðlaun. Hann mun klæðast treyju númer 24 hjá Manchester City.

„Allir sem horfðu á Manchester City spila á síðasta tímabili vita að það er besta lið heims. Að fá tækifæri til að vinna með Pep Guardiola er magnað. Ég veit að ég get orðið enn betri og er viss um að leikur minn muni þróast undir besta þjálfaranum í fótboltanum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.