Phillips til Tottenham (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Tottenham hefur staðfest komu Ashley Phillips frá Blackburn en hann skrifar undir fimm ára samning við félagið.
Phillips er 18 ára gamall enskur miðvörður en hann lék sinn fyrsta leik fyrir Blackburn á síðustu leiktíð. Alls urðu leikirnir 14 í öllum keppnum.
Tottenham kaupir leikmanninn á tvær milljónir punda.
Hann á að baki 16 landsleiki fyrir yngri landslið Englands en hann lék einnig með u16 ára liði Wales.
Fjárhagsvandræði eru hjá Blackburn en Jon Dahl Tomasson stjóri liðsins staðfesti viðræður milli félagana um Phillips í júlí. Arnór Sigurðsson gekk til liðs við félagið í sumar.




