Fotbolti.net
07.08.23 - 13:58
Brynjar Ingi Erluson

Napoli búið að finna arftaka Kim (Staðfest)

Napoli búið að finna arftaka Kim (Staðfest)
Canon

Mynd: Napoli

Ítalíumeistarar Napoli hafa staðfest kaupin á brasilíska miðverðinum Natan en hann kemur frá Red Bull Bragantino í Brasilílu.
Natan er 22 ára gamall og á þegar yfir hundrað leiki í efstu deild í heimalandinu.

Bragantino samþykkti 10 milljóna evra tilboð Napoli í Natan á dögunum og gerðust hlutirnir hratt fyrir sig.

Í dag var hann kynntur sem nýr leikmaður félagsins en hann skrifaði undir fimm ára samning.

Natan er ætlað að leysa suður-kóreska varnarmanninn Kim Min-Jae af hólmi en hann var seldur til Bayern München í síðasta mánuði.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.