Maitland-Niles til Lyon (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Ainsley Maitland-Niles er genginn til liðs við franska liðið Lyon og gerir fjögurra ára samning. Hann kemur á frjálsri sölu.
Þessi 25 ára gamli Englendingur er uppalinn hjá Arsenal þar sem hann lék 132 leiki. Hann hefur hins vegar undanfarin þrjú tímabil farið á lán.
Hann var hjá Southampton á síðustu leiktíð þar sem hann lék 26 leiki og skoraði þrjú mörk.
Samningurinn hans við Arsenal rann út í sumar og því yfirgaf hann félagið á frjálsri sölu.
Hann vann FA bikarinn með Arsenal og vann einnig Sambandsdeildina með Roma þar sem hann var á láni í fyrra.
????????'???? ??????????????? ???????? ???????????????? ????????????
— Olympique Lyonnais (@OL) August 7, 2023
Welcome @MaitlandNiles ???????????????????????????? pic.twitter.com/fzYJjeQdE9




