Fotbolti.net
05.08.23 - 14:02
Brynjar Ingi Erluson

Matheus Franca til Crystal Palace (Staðfest)

Matheus Franca til Crystal Palace (Staðfest)
Canon

Mynd: Crystal Palace

Brasilíski leikmaðurinn Matheus Franca er genginn til liðs við Crystal Palace frá Flamengo.
Þessi 19 ára gamli sóknarmaður kemur til Palace fyrir 26 milljónir punda en hann er hugsaður sem arftaki Wilfried Zaha sem fór til Galatasaray.

Franca skrifaði í dag undir fimm ára samning við Palace og er hann því annar leikmaðurinn sem það fær í glugganum.

„Ég er rosalega ánægður að vera hér og vonandi get ég skilað góðum úrslitum fyrir stuðningsmenn, aðra leikmenn og alla aðra sem tengjast félaginu.“

„Ég er spenntur fyrir fyrsta leiknum á mínu nýja heimili og að gefa mitt besta fyrir liðið. Ég vona að allir stuðningsmennirnir séu ánægðir að fá mig hingað og er ég viss um að þetta verði gott fyrir okkur öll,“
sagði Franca.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.