McClean til Wrexham (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Reynsluboltinn James McClean er genginn til liðs við Wrexham frá Wigan.
Wrexham leikur í fjórðu efstu deild á Englandi eftir að hafa unnið sig upp í deildina eftir sigur í utandeildinni á síðustu leiktíð. Hollywood leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney eru eigendur félagsins og hafa styrkt liðið mikið.
Talið er að Wrexham borgi 250 þúsund pund fyrir þennan 34 ára gamla leikmann.
McClean hefur mikla reynslu úr úrvalsdeildinni. Hann lék á sínum tíma fimm tímabil í úrvalsdeildinni, tvö með Sunderland og þrjú með West Brom.




