Fotbolti.net
05.08.23 - 11:42
Brynjar Ingi Erluson

Rasmus Höjlund til Man Utd (Staðfest)

Rasmus Höjlund til Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Man Utd

Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United hefur staðfest kaupin á danska framherjanum Rasmus Höjlund en hann kemur frá Atalanta fyrir 72 milljónir punda.
Höjlund er tvítugur sóknarmaður sem ólst upp hjá dönsku félögunum Bröndby og FCK en var seldur til Sturm Graz á síðasta ári þar sem hann var fljótur að finna sig.

Hann skoraði þar 12 mörk í 21 leik áður en hann var seldur um sumarið til Atalanta á Ítalíu en ítalska félagið greiddi um 17 milljónir evra fyrir kappann.

Höjlund gerði vel á sínu fyrsta og eina tímabili með Atalanta þar sem hann kom að fjórtán mörkum í Seríu A.

Manchester United hefur nú fest kaup á Höjlund fyrir 64 milljónir punda og ofan á bætast 8 milljónir punda í árangurstengdum greiðslum.

Danski sóknarmaðurinn skrifaði undir fimm ára samning með möguleika á að framlengja um annað ár. Höjlund var kynntur fyrir æfiingaleik Man Utd og Lens á Old Trafford.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.