Danskur framherji til liðs við HK (Staðfest)


Mynd: HK


Mynd: HK
Anton Söjberg er genginn í raðir HK en hann gerir samning út árið 2024.
Um er að ræða 22 ára gamlan danskan framherja en hann lék síðast með Vendsyssel í næst efstu deild í danmörku. Hann kom við sögu í 21 leik og skoraði tvö mörk.
Hann mun klæðast treyju númer 9 hjá HK.
Sojberg er annar leikmaðurinn sem HK fær í glugganum en Sigurbergur Áki Jörundsson gekk til liðs við félagið á láni frá Stjörnunni.
HK er nýliði í Bestu deildinni og situr í 8. sæti með 20 stig eftir 17 umferðir. Næsti leikur liðsins er gegn Keflavík í Kórnum næstkomandi miðvikudag.




