Fotbolti.net
08.08.23 - 10:16
Elvar Geir Magnússon

Livramento til Newcastle (Staðfest)

Livramento í treyju Newcastle.

Livramento í treyju Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United hefur keypt varnarmanninn Tino Livramento frá Southampton. Kaupverðið gæti náð 40 milljónum punda með árangurstengdum greiðslum.

Livramento er tvítugur og hefur skrifað undir fimm ára samning.
Livramento kom til Southampton frá Chelsea 2021 fyrir 5 milljónir punda og er þriðji leikmaðurinn sem Newcastle fær í sumar.

„Tino er afskaplega hæfileikaríkur ungur leikmaður sem á spennandi framtíð fyrir sér. Við erum afskaplega ánægðir með að fá hann," segir Eddie Howe, stjóri Newcastle.

Livramento meiddist illa í apríl 2022 og lék aðeins tvo leiki á síðasta tímabili. Tímabilið 2021-22 spilaði hann 32 leiki, þar á meðal 28 í ensku úrvalsdeildinni.

Newcastle endaði í fjórða sæti deildarinnar á síðasta tímabili og hefur fengið til sín ítalska miðjumanninn Sandro Tonali og enska vængmanninn Harvey Barnes í sumar.

Fyrsti leikur Newcastle í deildinni á þessu tímabili verður á heimavelli, gegn Aston Villa þann 12. ágúst.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.