Goncalo Ramos til PSG (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Portúgalski framherjinn Goncalo Ramos er genginn til liðs við PSG. Hann kemur til félagsins á láni. PSG getur fest kaup á honum fyrir 75 milljónir evra.
PSG fær Ramos frá Benfica þar sem hann er uppalinn en hann skoraði 41 mark í 106 leikjum fyrir félagið. Þá á hann 7 landsleiki og hefur skorað finmm mörk.
„Ég er stoltur og ánægður að hsafa gengið til liðs við PSG. Þetta er eitt stærsta félag í heimi með einn besta hópinn," sagði Ramos við undirskriftina.
Fyrsti leikur PSG á tímabilinu er næstkomandi laugardag þegar liðið fær Lorient í heimsókn. Óvíst er hvort Neymar verði þá leikmaður liðsins en hann er sagður ósáttur og vill fara.




