Fotbolti.net
05.08.23 - 14:36
Brynjar Ingi Erluson

Yerry Mina semur við Fiorentina (Staðfest)

Yerry Mina semur við Fiorentina (Staðfest)
Canon

Mynd: Fiorentina

Kólumbíski varnarmaðurinn Yerry Mina skrifaði í dag undir eins árs samning við ítalska félagið Fiorentina.
Mina er 28 ára gamall og var síðast á mála hjá Everton í ensku úrvalsdeildinni, en hann yfirgaf félagið í sumar er samningur hans rann út.

Miðvörðurinn var áður á mála hjá Barcelona á Spáni en hann er nú mættur í ítölsku deildina.

Í dag skrifaði hann undir eins árs samning við Fiorentina en það er þó ákvæði í samningnum sem framlengir hann um annað ár ef ákveðnum skilyrðum er mætt.

Mina á 40 A-landsleiki fyrir Kólumbíu og hefur skorað 7 mörk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.