Óskar Borgþórsson í Sogndal (Staðfest)

Óskar Borgþórsson leikur með Sogndal í Noregi næstu árin.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Borgþórsson leikur með Sogndal í Noregi næstu árin.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fylkir staðfesti í dag að Óskar Borgþórsson framherji liðsins hafi verið seldur til Sogndal í Noregi og samið við félagið til þriggja ára.
Það er högg fyrir Fylki sem er í fallbaráttu í Bestu deildinni, en Sogndal lagði mikla áherslu á að fá hann strax.
Óskar, sem er 19 ára gamall kantmaður, hefur sprungið út með uppeldisfélagi sínu í sumar og verið besti leikmaður Fylkis á tímabilinu.
Sogndal er sem stendur í þriðja sæti norsku B-deildarinnar og er liðið í harðri baráttu um að komast þar upp. Það eru nú þegar tveir Íslendingar hjá félaginu - Jónatan Ingi Jónsson og Valdimar Þór Ingimundarson - og verður Óskar sá þriðji.
TILKYNNING FYLKIS:
Óskar Borgþórsson seldur til norska liðsins Sogndal
Eins og áður hefur komið fram í fjölmiðlum hefur Fylkir átt í viðræðum við norska liðið Sogndal um sölu á Óskari Borgþórssyni, tvítugum leikmanni Fylkisliðsins.
Í dag getur Knattspyrnudeild Fylkis staðfest að samningar hafa náðst um vistaskipti Óskars sem mun flytjast til Noregs á næstu dögum þar sem hann hefur gengið frá samningi við Sogndal til næstu þriggja ára. Óskar, sem hefur æft með Fylki frá því hann var 5 ára gamall, lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki Fylkis í janúar 2021. Alls hefur Óskar leikið 68 leiki fyrir meistaraflokk Fylkis og skorað í þeim 15 mörk. Óskar á að baki fjóra leiki með landsliðum Íslands, tvo með U-19 og tvo með U-21.
Gleðigjafinn Óskar Borgþórsson er einn af mörgum uppöldum Fylkisstrákum sem við höfum lengi vitað að gætu fengið spennandi tækifæri erlendis. Það er ljóst að baráttan verður hörð í Bestu deildinni á næstu vikum og mánuðum og við erum sannfærð um að heildarhagsmunum okkar er best borgið með þessum samningi sem nú hefur verið staðfestur. Um leið og við kveðjum Óskar með þökkum höldum við ótrauðir áfram í þau spennandi verkefni sem bíða okkar í leikjunum framundan.
Haft var eftir Óskari: „Ég vil þakka leikmönnum, þjálfurum, stjórninni, vinum, knattspyrnuiðkendum og fyrst og fremst stuðningsmönnum fyrir öll þessi 15 ár sem ég átti hjá félaginu. Ég upplifði besta tíma í heimi með ykkur öllum og ég er svo þakklátur fyrir það. Takk fyrir mig í bili ÁFRAM FYLKIR“
Knattspyrnudeild Fylkis þakkar Óskari Borgþórssyni fyrir hans framlag til Fylkis, jafnframt því sem við óskum honum sem allrar mestrar velgengni í þeim verkefnum sem nú taka við.
GLEÐI, VIRÐING, METNAÐUR
Stjórn Knattspyrnudeildar Fylkis


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




