Alejo Véliz í Tottenham (Staðfest)

Alejo Veliz.

Mynd: Tottenham

Alejo Veliz.

Mynd: Tottenham
Tottenham hefur gengið frá kaupum á argentínska ungstirninu Alejo Veliz frá Rosario Central.
Hann skrifar undir samning til 2029 og verður í treyju númer 36 hjá félaginu. Heildarverðið fyrir þennan efnilega leikmann er í kringum 18 milljónir punda.
Fyrr í dag tilkynnti Tottenham um það að félagið væri búið að krækja í hollenska miðvörðinn Micky van de Ven frá Wolfsburg í Þýskalandi.
Véliz, sem er 19 ára gamall, hefur skorað ellefu mörk í 23 leikjum á þessari leiktíð.
Véliz er fastamaður í U20 ára landsliði Argentínu þar sem hann hefur gert þrjú mörk í níu leikjum.