Sommer mættur til Inter (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Yann Sommer er genginn til liðs við Inter frá Bayern Munchen en kaupverðið er talið vera í kringum 6 milljónir evra.
Sommer gekk til liðs við Bayern í janúar til að leysa Manuel Neuer af hólmi sem slasaðist í skíðaslysi eftir að þýska landsliðið féll úr leik á HM í vetur.
Inter hefur verið í leit að markverði eftir að félagið seldi Andre Onana til Manchester United. Þá er Samir Handanovic farinn frá félaginu og Ionut Radu var lánaður til Bournemouth.
Þessi 34 ára gamli markvörður er aðalmarkvörður svissneska landsliðsins og hefur leikið yfir 80 leiki fyrir þjóð sína.
Willkommen ????????#ForzaInter #WelcomeYann
— Inter (@Inter_en) August 7, 2023




