FRÉTTIR28.07.2023, 14:48
Ernest Slupski er kominn með leikheimild hjá ÍR en hann kemur til félagsins á láni frá Þrótti út tímabilið.
Hann hefur leikið ellefu leiki með Þrótti á þessu tímabili en þetta er annað tímabil hans hjá félaginu. Hann kom vel inn í lið Þróttar í fyrra og hjálpaði liðinu að komast upp, en hefur ekki fundið sig eins vel í sumar.
<i>„Ernest er kantmaður sem býr yfir miklum hraða og krafti sem ætti að geta nýst okkur mjög vel í sumar. Við bjóðum Ernest velkominn í Breiðholtið,"</i> segir í tilkynningu ÍR.
FRÉTTIR28.07.2023, 12:00
Manchester City er búið að selja vængmanninn Riyad Mahrez til Al Ahli í Sádi-Arabíu á 30 milljónir punda. Frá þessu greindi enska félagið í dag.
Mahrez var í fimm ár hjá City en hann var keyptur til félagsins frá Leicester sumarið 2018 og vann á síðasta tímabili þrennuna með liðinu.
FRÉTTIR28.07.2023, 10:11
Færeyingurinn Kaj Leo Í Bartalstovu er búinn að fá félagaskipti í Njarðvík úr Leikni.
FRÉTTIR28.07.2023, 10:08
Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Eupen í Belgíu. Það er búið að staðfesta félagaskipti hans þangað.
FRÉTTIR28.07.2023, 09:42
Birnir Snær Ingason er búinn að framlengja samning sinn við Víking. Nýr samningur hans við félagið gildir út tímabilið 2025.
FRÉTTIR28.07.2023, 07:00
ÍA hefur kallað Martein Theodórsson til baka úr láni frá Kára en þetta kemur fram á heimasíðu Skagamanna.
FRÉTTIR28.07.2023, 06:00
Njarðvík hefur lánað Magnús Magnússon aftur í Reyni Sandgerði en Njarðvíkingar greina frá þessu á heimasvæði sínu á Facebook.
FRÉTTIR28.07.2023, 06:00
Rúmenski markvörðurinn Ionut Andrei Radu er kominn til Bournemouth á láni frá ítalska félaginu Inter.
FRÉTTIR27.07.2023, 21:47
Margrét Árnadóttir er komin aftur í Þór/KA frá Parma en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
FRÉTTIR27.07.2023, 20:27
Jamal Lewis, leikmaður Newcastle United, mun eyða tímabilinu á láni hjá Watford í ensku B-deildinni en þetta staðfestu félögin í dag.
FRÉTTIR27.07.2023, 17:30
Brasilíski miðjumaðurinn Arthur er genginn í raðir Fiorentina á lánssamningi út tímabilið. Fiorentina hefur klásúlu um að kaupa hann alfarið.
Áður en Arthur fór til Flórens skrifaði hann undir nýjan samning við Juventus til 2026.
FRÉTTIR27.07.2023, 16:52
Jón Sveinsson hefur verið látinn fara frá Fram en þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu. Hans síðasti leikur við stjórnvölinn var 4-0 tap gegn Stjörnunni í gær.
Í tilkynningunni kemur fram að Ragnar Sigurðsson, sem var aðstoðarmaður Jóns, og Aðalsteinn Aðalsteinsson, sem er yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, hafi tekið við stjórn liðsins til bráðabirgða en ekki er ljóst hversu lengi það verður. Þórhallur Víkingsson sem var einnig aðstoðarmaður Jóns lætur af störfum samhliða honum.
Fram er í fallsæti og hefur tapað fjórum leikjum í röð. Liðið hefur fengið á sig flest mörk allra liða og auk þess ekki skorað í fjórum leikjum í röð.
Fram á leik gegn Fylki þann 8. ágúst svo það er nokkuð langt í næsta leik .
FRÉTTIR27.07.2023, 16:45
ÍA tilkynnti rétt í þessu að miðjumaðurinn Albert Hafsteinsson væri genginn í raðir félagsins. Hann kemur til félagsins eftir þrjú og hálft tímabil í Fram.
Skagamaðurinn hefur verið orðaður við ÍA reglulega eftir brottför sína og voru sögur farnar að heyrast á síðustu dögum að hann væri á förum til uppeldisfélagsins.
Samningur hans við Fram átti að renna út í lok tímabilsins. Hann lék með Fram gegn Stjörnunni í gær en er nú, degi síðar, kominn í ÍA.
FRÉTTIR27.07.2023, 16:30
AC Milan hefur keypt Samuel Chukwueze frá Villarreal fyrir 28 milljónir evra og hefur nígeríski leikmaðurinn skrifað undir samning til 2028.
Chukwueze klæðist treyjunúmeri 21 á komandi tímabili.
Sem hluti af samkomulaginu hefur Villarreal fengið varnarmanninn Matteo Gabbia lánaðan en ekkert ákvæði er um möguleg kaup.
Chukwueze er 24 ára og skoraði 12 mörk og átti 11 stoðsendingar í 50 mótsleikjum fyrir Villarreal á síðasta tímabili.
FRÉTTIR27.07.2023, 16:18
FC Kaupmannahöfn hefur gert samning við norska landsliðsmanninn Mohamed Elyounoussi sem gildir til ársins 2027.
FRÉTTIR27.07.2023, 13:15
Selfoss hefur tilkynnt um komu bandaríska framherjans Haley Marie Johnson til félagsins. Hún á að hjálpa liðinu að bjarga sér frá falli úr Bestu deildinni.
<i>„Johnson er 23 ára og kemur úr Milwaukee háskóla. Eftir útskrift hefur hún leikið með RKC Third Coast í 2. deild í Bandaríkjunum,"</I> segir í tilkynningu félagsins.
FRÉTTIR27.07.2023, 11:24
Jordan Henderson er genginn í raðir sádi-arabíska félagsins Al-Ettifaq eftir tólf ár hjá Liverpool. Al-Ettifaq greiðir Liverpool 12 milljónir punda fyrir enska landsliðsmanninn auk mögulegra bónusa.
FRÉTTIR27.07.2023, 11:20
Jacob Bruun Larsen er genginn í raðir Burnley á láni út tímabilið frá þýska félaginu Hoffenheim.
Bruun Larsen er 24 ára vængmaður sem uppalinn er hjá Lyngby en fór ungur að árum til Dortmund. Larsen var í fjögur ár hjá Dortmund en eitt tímabilið fór hann á láni til Anderlecht og hitti hann þar fyrir Vincent Kompany sem er í dag stjóri Burnley.
FRÉTTIR27.07.2023, 09:30
Framherjinn Mateo Retegui er nýr liðsfélagi Alberts Guðmundssonar hjá Genoa en þetta tilkynnti félagið í dag.
FRÉTTIR27.07.2023, 06:00
Spænski sóknartengiliðurinn Isco skrifaði í gær undir eins árs samning við Real Betis í La Liga.