Fotbolti.net
28.07.23 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Riyad Mahrez til Al Ahli (Staðfest)

Riyad Mahrez til Al Ahli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City er búið að selja vængmanninn Riyad Mahrez til Al Ahli í Sádi-Arabíu á 30 milljónir punda. Frá þessu greindi enska félagið í dag.

Mahrez var í fimm ár hjá City en hann var keyptur til félagsins frá Leicester sumarið 2018 og vann á síðasta tímabili þrennuna með liðinu.
Mahrez fór ekki í æfingaferð City til Asíu þar sem hann var á förum til Sádí og skrifar hann undir þriggja ára samning við Al Ahli.

Mahrez er 32 ára gamall og er fyrirliði alsírska landsliðsins. Hann varð enskur meistari með Leicester vorið 2016 og vann svo deildina fjórum sinnum sem leikmaður Man City. Hjá Man City vann hann Meistaradeildina einu sinni, enska bikarinn tvisvar, deildabikarinn þrisvar og Samfélagsskjöldinn einu sinni.

Hjá Man City lék hann 236 leiki og skoraði í þeim 78 mörk. Hjá Al Ahli hittir hann fyrir landa sinn Ryad Boudebouz og þá Roberto Firmino og Edouard Mendy sem gengu í raðir félagsins í sumar.

Al Ahli hefur verið orðað við Matthias Jaissle sem var í dag látinn fara frá RB Salzburg. Jaissle er álitinn einn efnilegasti þjálfari Evrópu.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.