Fotbolti.net
27.07.23 - 13:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Selfoss fær bandarískjan framherja (Staðfest)

Selfoss fær bandarískjan framherja (Staðfest)
Canon

Mynd: Selfoss

Hertz
Selfoss hefur tilkynnt um komu bandaríska framherjans Haley Marie Johnson til félagsins. Hún á að hjálpa liðinu að bjarga sér frá falli úr Bestu deildinni.

„Johnson er 23 ára og kemur úr Milwaukee háskóla. Eftir útskrift hefur hún leikið með RKC Third Coast í 2. deild í Bandaríkjunum," segir í tilkynningu félagsins.
„Vonar eru bundnar við að Haley muni bæta sóknarleik liðsins og valda usla í vörn andstæðingsins."

Selfoss er í botnsæti deildarinnar, sex stigum frá öruggu sæti þegar sex umfeðir eru eftir af deildarkeppninni og í kjölfarið verður deildinni skipt upp í tvo hluta.

Haley er annar leikmaðurinn sem Selfoss fær í glugganum. Miðjumaðurinn Abbey Burdettee gekk í raðir félagsins fyrr í mánuðinum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.