Fotbolti.net
27.07.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Isco frá Sevilla til nágrannanna í Real Betis (Staðfest)

Isco frá Sevilla til nágrannanna í Real Betis (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski sóknartengiliðurinn Isco skrifaði í gær undir eins árs samning við Real Betis í La Liga.
Isco eyddi níu árum hjá Real Madrid þar sem hann vann Meistaradeildina fimm sinnum en hann samdi við Sevilla á síðasta ári.

Ævintýri hans hjá Sevilla gekk ekki eins og hann hafði viljað en hann spilaði aðeins 19 leiki í öllum keppnum áður en hann yfirgaf félagið um mitt tímabil.

Hann skrifaði í dag undir eins árs samning við erkifjendur þeirra í Real Betis.

Manuel Pellegrini, þjálfari Betis, vildi fá Isco en þeir unnu saman hjá Malaga fyrir tólf árum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.