Þróttur lánar Ernest Slupski í ÍR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ernest Slupski er kominn með leikheimild hjá ÍR en hann kemur til félagsins á láni frá Þrótti út tímabilið.
Hann hefur leikið ellefu leiki með Þrótti á þessu tímabili en þetta er annað tímabil hans hjá félaginu. Hann kom vel inn í lið Þróttar í fyrra og hjálpaði liðinu að komast upp, en hefur ekki fundið sig eins vel í sumar.
„Ernest er kantmaður sem býr yfir miklum hraða og krafti sem ætti að geta nýst okkur mjög vel í sumar. Við bjóðum Ernest velkominn í Breiðholtið," segir í tilkynningu ÍR.

ÍR er í sjötta sæti 2. deildar en deildin er gríðarlega jöfn og ekki löng leið í alvöru baráttu um að komast upp.