Jordan Henderson til Al Ettifaq (Staðfest)

Var í tólf ár hjá Liverpool og fyrirliði liðsins í átta ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vann Meistaradeildina.

Mynd: Getty Images

Gerrard og Henderson hittast aftur.

Mynd: Al Ettifaq

Jordan Henderson er genginn í raðir sádi-arabíska félagsins Al-Ettifaq eftir tólf ár hjá Liverpool. Al-Ettifaq greiðir Liverpool 12 milljónir punda fyrir enska landsliðsmanninn auk mögulegra bónusa.
Henderson skrifar undir þriggja ára samning í Sádi-Arabíu og hefur verið fjallað um að hann fái 700 þúsund pund í vikulaun.
Hjá Al Ettifaq hittir Henderson fyrir Steven Gerrard. Þeir léku saman hjá Liverpool og tók Henderson við fyrirliðabandinu þegar Gerrard yfirgaf félagið eftir tímabilið 2014-15.
Henderson gekk í raðir Liverpool árið 2011 frá Sunderland og lék 492 keppnisleiki með Liverpool. Í þeim skoraði hann 33 mörk. Hjá Liverpool vann hann úrvalsdeildina einu sinni, enska bikarinn einu sinni, deildabikarinn tvisvar, Samfélagsskjöldinn einu sinni, Meistaradeildina einu sinni, evrópska Ofurbikarinn einu sinni og HM félagsliða einu sinni. Hann var ungi leikmaður ársins hjá Liverpool tímabilið 2011-12, leikmaður ársins hjá stuðningsmönnum 2019-20 og var í liði ársins á því tímabili.
Henderson er enskur landsliðsmaður sem lék sinn fyrsta landsleik 2010. Hann hefur alls leikið 77 landsleiki og skorað þrjú landsliðsmörk.
Sjá einnig:
Henderson kveður Liverpool - „Ég verð Poolari til æviloka“

???? ???? ???????????????????????????? ?? ???? ???? ??????? ??????
— ???? ??????? (@Ettifaq) July 27, 2023
#???????_?????? pic.twitter.com/QyimVY6K6x
We can confirm @JHenderson has completed a transfer to Al-Ettifaq.
— Liverpool FC (@LFC) July 27, 2023
As his Anfield chapter now comes to a close, everyone at the club wishes to place on record their thanks and gratitude for everything Jordan did for us during his 12 years as a Red ????

Vann Meistaradeildina.

Mynd: Getty Images

Gerrard og Henderson hittast aftur.

Mynd: Al Ettifaq