Bournemouth fær Radu á láni frá Inter (Staðfest)

Mynd: Bournemouth

Mynd: Bournemouth
Rúmenski markvörðurinn Ionut Andrei Radu er kominn til Bournemouth á láni frá ítalska félaginu Inter.
Radu er 26 ára gamall og á 53 leiki í Seríu A á Ítalíu með Inter, Genoa, Parma og Cremonese.
Hann var á láni hjá franska félaginu Auxerre á síðasta tímabili en er nú mættur í ensku úrvalsdeildina.
Bournemouth staðfesti lánssamning við Inter um Radu í dag og mun hann því berjast við Neto og Darren Randolph um stöðuna.
Radu er fimmti leikmaðurinn sem Bournemouth fær í glugganum á eftir Justin Kluivert, Hamed Junior Traore, Milos Kerkez og Romain Faivre.