Fotbolti.net
27.07.23 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Arthur til Fiorentina (Staðfest)

Arthur Melo í leik með Juventus.

Arthur Melo í leik með Juventus.

Canon

Mynd: EPA

Brasilíski miðjumaðurinn Arthur er genginn í raðir Fiorentina á lánssamningi út tímabilið. Fiorentina hefur klásúlu um að kaupa hann alfarið.

Áður en Arthur fór til Flórens skrifaði hann undir nýjan samning við Juventus til 2026.
Arthur var lánaður til Liverpool en dvöl hans þar reyndist misheppnuð.

Arthur er 26 ára og kom til Juve frá Barcelona 2020. Hann spilaði 63 leiki og skoraði eitt mark á tveimur tímabilum með Juve áður en hann hélt til Englands á síðasta ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.