Fotbolti.net
27.07.23 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson

Ítalski landsliðsmaðurinn Retegui orðinn liðsfélagi Alberts (Staðfest)

Ítalski landsliðsmaðurinn Retegui orðinn liðsfélagi Alberts (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Mateo Retegui er nýr liðsfélagi Alberts Guðmundssonar hjá Genoa en þetta tilkynnti félagið í dag.
Retegui er 24 ára gamall og fæddur í Argentínu en hann er með tvöfalt vegabréf í gegnum foreldra sína.

Hann kemur til Genoa frá Boca Juniors í Argentínu en þetta eru ein áhugaverðustu kaupin í Seríu A til þessa.

Genoa er nýliði í deildinni eftir að hafa hafnað í 2. sæti B-deildarinnar á síðasta ári og kom á óvart að Retegui hafi valið að fara þangað, sérstaklega eftir að hafa verið orðaður við stærstu félögin á Ítalíu.

Enska úrvalsdeildarfélagið Wolves vildi einnig kaupa hann en gat það ekki vegna fjárhagsreglna FFP.

Retegui valdi það að spila fyrir landslið Ítalíu fyrr á þessu ári en hann skoraði tvö mörk í fyrstu tveimur landsleikjum sínum undir stjórn Roberto Mancini.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.