Fotbolti.net
28.07.23 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

ÍA kallar Martein til baka frá Kára (Staðfest) - Má spila gegn Aftureldingu í kvöld

ÍA kallar Martein til baka frá Kára (Staðfest) - Má spila gegn Aftureldingu í kvöld
Canon

Mynd: ÍA

Lengjudeildin
ÍA hefur kallað Martein Theodórsson til baka úr láni frá Kára en þetta kemur fram á heimasíðu Skagamanna.
Marteinn er fæddur árið 2001 og gekk í raðir Kára á láni frá ÍA fyrir tímabilið.

Undanfarin ár hefur hann glímt við erfið meiðsli og kom sér því aftur af stað með Kára í 3. deildinni.

Hann gerði 3 mörk í 13 leikjum en hefur nú verið kallaður til baka í ÍA.

Marteinn á fimm leiki að baki fyrir ÍA í efstu deild en allir komu þeir árið 2020.

Þessi öflugi leikmaður er kominn með leikheimild og verður því klár fyrir leikinn gegn toppliði Aftureldingar í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.