Fotbolti.net
27.07.23 - 11:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bruun Larsen til Burnley (Staðfest) - Skrímsli hf. kynning

Bruun Larsen til Burnley (Staðfest) - Skrímsli hf. kynning
Canon

Mynd: Burnley

Jacob Bruun Larsen er genginn í raðir Burnley á láni út tímabilið frá þýska félaginu Hoffenheim.

Bruun Larsen er 24 ára vængmaður sem uppalinn er hjá Lyngby en fór ungur að árum til Dortmund. Larsen var í fjögur ár hjá Dortmund en eitt tímabilið fór hann á láni til Anderlecht og hitti hann þar fyrir Vincent Kompany sem er í dag stjóri Burnley.
Hann var fyrst valinn í danska landsliðið 2019 og hefur spilað sex landsleiki.

„Mér hefur verið sagt að þetta sé erfið deild, en ég er klárlega mjög spenntur og get ekki beðið eftir því að gera vonandi eitthvað frábært á þessu tímabili."

„Mig langaði að koma til Burnley, allt verkefnið veitti mér innblástur og um leið og ég heyrði af möguleikanum vissi ég að þetta var það sem ég vildi gera. Það er draumur fyrir mig að vera hér og fá tækifæri til að spila í úrvalsdeildinni,"
segir Bruun Larsen.

Burnley vann Championship deildina í vor og verður því nýliði í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili. Burnley er þekkt fyrir að kynna nýja leikmenn félagsins með skemmtilegum myndböndum og hér má sjá kynninguna á Bruun Larsen. Atriði úr kvikmyndinni Skrímsli hf. (e. Monsters, Inc.) er notað til að kynna Danann.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.