Guðlaugur Victor til Eupen (Staðfest)

Guðlaugur Victor Pálsson.

Mynd: Eupen

Guðlaugur Victor Pálsson.

Mynd: Eupen
Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Eupen í Belgíu. Það er búið að staðfesta félagaskipti hans þangað.
Fótbolti.net greindi fyrst frá áhuga Eupen á Guðlaugi Victori í byrjun þessa mánaðar en núna eru skiptin gengin í gegn.
Guðlaugur Victor kemur til Eupen frá DC United í Bandaríkjunum. Victor hefur verið í mikilvægu hlutverki undir stjórn Wayne Rooney hjá D.C. United í bandarísku MLS deildinni, en þar áður lék hann með Schalke í þýska boltanum.
Victor er 32 ára gamall og á 36 leiki að baki fyrir íslenska landsliðið. Hann er varnarsinnaður miðjumaður að upplagi en getur einnig spilað sem miðvörður og hægri bakvörður.
Eupen rétt bjargaði sér frá falli úr efstu deild í vor og byrjar nýtt deildartímabil á heimavelli gegn Westerlo um helgina. Victor mun mæta til félagsins klár í slaginn án þess að þurfa að ganga í gegnum undirbúningstímabil.