Birnir Snær búinn að framlengja við Víking (Staðfest)

Birnir Snær Ingason.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Birnir Snær Ingason.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Birnir Snær Ingason er búinn að framlengja samning sinn við Víking. Nýr samningur hans við félagið gildir út tímabilið 2025.
Birnir Snær gekk til liðs við Víking frá HK árið 2021. Hann hefur blómstrað undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar í sumar og hefur verið einn af betri leikmönnum Bestu deildarinnar.
„Það er gríðarlega sterkt að vera búnir að framlengja við Birni Snæ sem hefur verið virkilega öflugur fyrir okkur seinustu tvö ár og heldur sífellt áfram að bæta sinn leik. Hann er mjög mikilvægur leikmaður innan sem utan vallar og er frábær fyrirmynd fyrir yngri kynslóðina sem er að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki Víkings," segir Arnar, þjálfari Víkinga.
Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, fagnar tíðindunum mikið.
„Birnir er einn hæfileikríkasti leikmaður deildarinnar og það hefur verið mikill stígandi í hans leik. Hann hefur sannað það í sumar að hann er einn hæfileikaríkasti leikmaðurinn á Íslandi og hefur verið einn allra besti leikmaðurinn í deildinni. Við Víkingar getum glaðst yfir því að Birnir sé búinn að framlengja við félagið til tveggja ára í hið minnsta," segir Kári.
Mikill áhugi á leikmanninum
Það hefur verið fjallað um mikinn áhuga á Birni undanfarið. Það voru sögur þess efnis að Breiðablik hefði sett sig í samband við Víkinga um að fá hann í sínar raðir.
„Það er annað hvert lið á landinu búið að hafa samband. Það er ekkert launungarmál að hann er að renna út á samningi. Annað hvert lið er búið að lýsa áhuga á því að fá hann og mega tala við hann ef þau tilkynna okkur um það. En við erum hins vegar að reyna líka að landa samningum við hann. Það gengur ágætlega, aðeins að rofa til þar. Vonandi náum við bara að klára það og halda honum sem Víkingi," sagði Kári í samtali við Fótbolta.net fyrir fjórum dögum síðan. Núna er félagið búið að framlengja við hann.

The show goes on ?????? pic.twitter.com/DV6i9wRjeq
— Víkingur (@vikingurfc) July 28, 2023