Margrét til Þórs/KA að nýju (Staðfest)

Margrét Árnadóttir er komin heim

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Margrét Árnadóttir er komin heim

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Margrét Árnadóttir er komin aftur í Þór/KA frá Parma en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Í byrjun ársins yfirgaf Margrét Þór/KA eftir að samingur hennar rann út í von um að komast að í atvinnumennsku og gekk það upp, en hún samdi við Parma út tímabilið.
Margrét fékk fá tækifæri með Parma og fór það svo að liðið féll niður í B-deildina.
Hún er nú komin aftur í Þór/KA en þetta er mikið fagnaðarefni fyrir liðið, enda gæðaleikmaður á ferð.
Margrét á að baki 89 leiki og 20 mörk í efstu deild með Þór/KA en Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari liðsins, segist ánægður að fá hana aftur í raðir félagsins.
„Það er okkur mikið ánægjuefni að fá Margréti aftur inn í okkar sterka hóp. Með henni fáum við inn meiri reynslu og gæði í annars mjög ungan og efnilegan leikmannahóp, við aukum breiddina, sem er mjög mikilvægt fyrir okkur fyrir lokakafla hefðbundnu deildarkeppninnar og svo áfram í leikjunum sem bætast við eftir tvískiptinguna. Við eigum sex leiki eftir í deildinni sem raðast á innan við mánuð og þar mun breiddin skipta miklu máli.
„Við vitum alveg hvað Margrét getur, vitum hvað við erum að fá. Magga getur leyst margar stöður og á eftir að styrkja okkur mikið. Hún er ein af okkur og þekkir allt hér og við þekkjum hana, þannig að Margrét mun smella vel inn í hópinn hjá okkur og okkar leik, það er enginn vafi,” sagði Jóhann Kristinn á heimasíðu félagsins.