FCK semur við Elyounoussi (Staðfest) - Með góða reynslu frá Englandi

Mohamed Elyounoussi.

Mynd: FCK

Mohamed Elyounoussi.

Mynd: FCK
FC Kaupmannahöfn hefur gert samning við norska landsliðsmanninn Mohamed Elyounoussi sem gildir til ársins 2027.
Elyounoussi kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Southampton en hann lék með liðinu í ensku úrvalsdeildinni frá 2018 til 2023 en félagið keypti hann á 16 milljónir punda frá Basel í Sviss. Elyounoussi lék einnig með skoska liðinu Celtic á láni í tvö tímabil.
Elyounoussi, sem er kantmaður, kom við sögu í 37 keppnisleikjum með Southampton á síðustu leiktíð þegar liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni, og hann skoraði eitt mark. Hann spilaði alls 79 leiki í ensku úrvalsdeildinni.
„Við búumst við því að hann verði stór leikmaður fyrir okkur," segir Peter Christiansen, yfirmaður fótboltamála hjá FC Kaupmannahöfn.
Þetta eru ekki sérlega góð tíðindi fyrir Ísak Bergmann Jóhannesson þar sem Elyounoussi getur bæði spilað á kanti og sem fremstur á miðju.
FCK er að spila við Breiðablik í forkeppni Meistaradeildarinnar en danska liðið er með 0-2 forystu eftir fyrri leikinn á Kópavogsvelli.

Orri Steinn Óskarsson og Ísak Bergmann Jóhannesson leika með FCK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð