Fotbolti.net
28.07.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Magnús lánaður aftur í Reyni (Staðfest)

Magnús lánaður aftur í Reyni (Staðfest)
Canon

Mynd: Reynir S.

Njarðvík hefur lánað Magnús Magnússon aftur í Reyni Sandgerði en Njarðvíkingar greina frá þessu á heimasvæði sínu á Facebook.
Magnús kom til Njarðvíkur frá Reyni eftir síðustu leiktíð og kom við sögu í níu leikjum með Lengjudeildarliðinu í sumar.

Hann verður á láni hjá Reyni út tímabilið en þetta er gríðarlegur styrkur fyrir liðið.

Á síðasta ári skoraði hann fimm mörk í tuttugu deildarleikjum með Reyni er liðið féll niður í 3. deild.

Reynir er á toppnum í 3. deildinni með 31 stig og mun þetta klárlega hjálpa liðinu í lokakafla mótsins, en hann er þegar kominn með leikheimild og verður því væntanlega með liðinu er það mætir Víði í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.