FRÉTTIR24.08.2023, 17:12
Manchester City hefur tilkynnt að Jeremy Doku sé orðinn leikmaður félagsins. City kaupir hann á ríflega 55 milljónir punda frá Rennes.
Belgíski vængmaðurinn kláraði læknisskoðun hjá félaginu í dag og eftir hana tilkynnti félagið um komu nýja leikmannsins.
Doku skrifar undi fimm ára samning við ensku meistaranna og er hann þriðji leikmaðurinn sem félagið kaupir í sumar.
FRÉTTIR24.08.2023, 16:59
Groningen í Hollandi hefur að undanförnu verið orðað við Noam Emeran sem er vængmaður Manchester United. Upphaflega var greint frá því að hann færi frá United á láni en enska félagið greinir frá því að Emeran kaupi leikmanninn.
Hann er tvítugur og skoraði fyrsta mark United á undirbúningstímabilinu í sumar þegar hann skoraði fyrra markið í 2-0 sigri á Leeds.
FRÉTTIR24.08.2023, 15:22
Árni Vilhjálmsson hefur yfirgefið herbúðir litháíska félagsins Zalgiris, hann komst að samkomulagi við félagið um riftun á samningi sínum.
Árni er 29 ára gamall framherji sem samdi við Zalgiris snemma á þessu ári og gerði samning út tímabilið. Á heimasíðu Zalgiris er hann reyndar sagður 31 árs, tveimur árum eldri en hann er í raun.
FRÉTTIR24.08.2023, 15:00
Grótta greindi frá því í dag að Lesótómaðurinn Tumeliso Ratsiu væri genginn í raðir félagsins og kemur hann til landsins í dag. Hann verður í leikmannahópi liðsins í leiknum mikilvæga gegn Þrótti á morgun.
Tumeliso er 19 ára gamall sóknarmaður sem hefur æft og stundað nám í Kick4Life akademíunni í Lesóto frá 10 ára aldri. Þar starfaði Paul Westren við góðan orðstír en hann er í dag yfirþjálfari yngri flokka Gróttu.
FRÉTTIR24.08.2023, 14:41
Chelsea hefur gengið frá kaupum á brasilíska framherjanum Deivid Washington frá Santos fyrir um 17, 2 milljónir punda. Hann kyssti Chelsea merkið þegar hann var kynntur.
Þessi átján ára gamli leikmaður skrifaði undir sjö ára samning á Stamford Bridge en honum er lýst sem fjölhæfum sóknarmanni. Hann spilaði níu aðalliðsleiki fyrir Santos og skoraði tvö mörk.
Washington er níundi leikmaðurinn sem Chelsea kaupir í sumarglugganum.
FRÉTTIR24.08.2023, 14:07
Aymeric Laporte er genginn í raðir Al Nassr í Sádi-Arabíu frá Manchester Ciyt. Al Nassr greiðir 25 milljónir punda fyrir miðvörðinn sem skrifar undir þriggja ára samning.
Franski Baskinn var í fimm og hálft ár hjá City og vann þar 13 stóra titla. Hann kom frá Athetlic á Spáni í janúar 2018 og lék 180 leiki fyrir félagið.
FRÉTTIR24.08.2023, 13:00
Manchester United hefur lánað Brandon Williams til Ipswich út tímabilið. Williams er réttfættur vinstri bakvörður sem uppalinn er hjá United.
Hann á að baki 51 keppnisleik með United. Á síðasta tímabili kom hann við sögu í einum leik og tímabilið þar á undan var hann á láni hjá Norwich.
FRÉTTIR24.08.2023, 11:49
Ítalska félagið Bologna hefur lagt fram tilboð í Remo Freuler, miðjumann Nottingham Forest.
Bologna er í leit að styrkingu á miðsvæðið og Thiago Motta, þjálfari liðsins, er með svissneska landsliðsmanninn efstan á sínum óskalista.
Freuler er 31 árs og þekkir ítalska boltann frá því hann lék með Atalanta.
FRÉTTIR24.08.2023, 08:50

Las Palmas er búið að krækja í nokkra leikmenn í sumar eftir að hafa komist upp um deild á síðustu leiktíð.

FRÉTTIR24.08.2023, 08:20

Real Sociedad er búið að krækja í þrjá leikmenn í sumar og er hinn eftirsótti Arsen Zakharyan einn þeirra.

FRÉTTIR24.08.2023, 08:00

Ítalíumeistarar Napoli eru að halda áfram að stækka leikmannahópinn hjá sér fyrir komandi leiktíð í ítalska boltanum og Meistaradeild Evrópu.

FRÉTTIR24.08.2023, 07:20

Franska félagið Lens er búið að bæta félagsmetið sitt á leikmannamarkaðinum eftir að hafa verið spútnik lið síðustu leiktíðar í efstu deild franska boltans. Liðið endaði í öðru sæti, aðeins einu stigi eftir Frakklandsmeisturum PSG.

FRÉTTIR23.08.2023, 21:56

Xabi Alonso er að styrkja leikmannahópinn hjá Bayer Leverkusen í sumar og var að krækja í tvo öfluga varnarmenn. Annar þeirra er hinn öflugi Alex Grimaldo sem var meðal annars orðaður við Arsenal og FC Bayern í sumar.

FRÉTTIR23.08.2023, 18:08

Nottingham Forest er búið að staðfesta komu argentínska landsliðsmannsins Gonzalo Montiel á lánssamningi frá Sevilla.

FRÉTTIR23.08.2023, 17:37

Bernardo Silva er búinn að skrifa undir nýjan samning við Manchester City sem gildir næstu þrjú árin, eða til 2026. Hann var áður samningsbundinn félaginu til 2025.

FRÉTTIR23.08.2023, 16:52
Valur staðfesti í dag að félagið hefði náð samkomulagi við Triestina Calcio á Ítalíu. Samkomulagið er á þá leið að ítalska félagið kaupir Kristófer af Val.
FRÉTTIR23.08.2023, 06:00

AC Milan hefur nælt í hinn 21 árs gamla Marco Pellegrino frá argentínska félaginu Platense. Hann skrifar undir fimm ára samning.

Fabrizio Romano greinir frá því að kaupverðið sé 3 milljónir evra.

FRÉTTIR22.08.2023, 21:20

Aaron Ramsey er genginn til liðs við Burnley frá Aston Villa. Kaupverðið er talið vera í kringum 12 milljónir punda.

FRÉTTIR22.08.2023, 20:06
Logi Tómasson er genginn í raðir norska félagsins Strömsgodset sem kaupir hann af uppeldisfélaginu Víkingi. Vinstri bakvörðurinn skrifar undir þriggja ára samning.
Logi verður 23 ára í næsta mánuði og hefur hann verið einn allra besti vinstri bakvörður landsins undanfarin ár. Hann lék í fyrra sína fyrstu tvo A-landsleiki.
FRÉTTIR22.08.2023, 17:07
West Ham hefur gengið frá kaupum á Konstantinos Mavropanos frá Stuttgart. Mavropanos er grískur landsliðsmiðvörður sem var á mála hjá Arsenal á árunum 2018-2022.
Mavropanos skrifar undir fimm ára samning. Kaupverðið er sautján milljónir punda og svo getur Stuttgart fengið tvær milljónir punda til viðbótar í árangurstengdum greiðslum.