Árni Vill yfirgefur Zalgiris (Staðfest)

Mynd: Zalgiris Vilnius

Mynd: Zalgiris Vilnius
Árni Vilhjálmsson hefur yfirgefið herbúðir litháíska félagsins Zalgiris, hann komst að samkomulagi við félagið um riftun á samningi sínum.
Árni er 29 ára gamall framherji sem samdi við Zalgiris snemma á þessu ári og gerði samning út tímabilið. Á heimasíðu Zalgiris er hann reyndar sagður 31 árs, tveimur árum eldri en hann er í raun.

Hann skoraði í fyrsta leik sínum fyrir Zalgiris í Ofurbikar Litháen í febrúar þegar Zalgiris lagði Kauno. Hann skoraði alls fimm mörk og lagði upp eitt í 21 leik fyrir félagið.
Félagið þakkar Árna fyrir fagmennsku sína og alla þá vinnu sem hann hefur unnið sem leikmaður félagsins og óskar honum velgengni í framtíðinni.
Árni er uppalinn hjá Breiðabliki og var orðaður við heimkomu í sumar. Hann er unnusti Söru Bjarkar Gunnarsdóttur sem er leikmaður Juventus á Ítalíu. Sara á eitt ár eftir af samningi sínum við Juve.