Fotbolti.net
24.08.23 - 16:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Groningen kaupir vængmann Man Utd (Staðfest)

Groningen kaupir vængmann Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Groningen í Hollandi hefur að undanförnu verið orðað við Noam Emeran sem er vængmaður Manchester United. Upphaflega var greint frá því að hann færi frá United á láni en enska félagið greinir frá því að Emeran kaupi leikmanninn.

Hann er tvítugur og skoraði fyrsta mark United á undirbúningstímabilinu í sumar þegar hann skoraði fyrra markið í 2-0 sigri á Leeds.
Emeran kom frá Amiens frá fyrir fjórum árum sínum. Hann mun halda ferli sínum áfram í efstu deild í Hollandi.

Á sínum tíma var hann orðaður við Barcelona, Juventus og PSG en ákvað að velja United eftir langar viðræður.

Emeran er Frakki sem lék á sínum tíma tvo leiki með U16 landsleiki. Hann getur einnig valið að spila fyrir Rúanda en móðir hans er fædd þar. Faðir hans, Fritz Emeran, lék á sínum tíma landsleiki fyrir Rúanda.

Kaupverðið er óuppgefið en er talið vera á bilinu 700 þúsund - 1 milljón evra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.