Jeremy Doku til Man City (Staðfest)

Mynd: Manchester City

Mynd: Manchester City
Manchester City hefur tilkynnt að Jeremy Doku sé orðinn leikmaður félagsins. City kaupir hann á ríflega 55 milljónir punda frá Rennes.
Belgíski vængmaðurinn kláraði læknisskoðun hjá félaginu í dag og eftir hana tilkynnti félagið um komu nýja leikmannsins.
Doku skrifar undi fimm ára samning við ensku meistaranna og er hann þriðji leikmaðurinn sem félagið kaupir í sumar.

„Ég þekki auðvitað Kevin. Hann er fyrirliðinn okkar og um leið og hann heyrði af sögusögnunum þá sendi hann mér strax skilaboð, gaf mér upplýsingar og spurði hvort ég hefði einhverjar spurningar," sagði Doku við undirskrift og talaði þá um Kevin De Bruyne sem er liðsfélagi hans í belgíska landsliðinu og nú liðsfélagi hans hjá City.
„Hann er meiddur núna en hann sagði mér að ef ég þyrfti á honum að halda þá væri hann til staðar. Ég var ánægður að heyra það. Það gerir hlutina auðveldari fyrir mig."
„Ég er mjög glaður a ðvera kominn. Þetta er stórt félag, risastórt félag og ég er mjög spenntur að byrja. Get ekki beðið. Með góðan stjóra þá get ég ekki orðið annað en betri leikmaður og ég veit hvað hann getur gert til að gera mig betri," sagði leikmaðurinn.
Hann er þekktur fyrir styrk sinn, tækni og hraða og verður fróðlegt að sjá hann í ljósbláu City treyjunni. Doku verður í treyju númer 11 hjá City.

Welcome to City, @JeremyDoku! ???? pic.twitter.com/hSEbehFDz9
— Manchester City (@ManCity) August 24, 2023
?????????? pic.twitter.com/d71nKxmT0m