Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24447 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR21.07.2023, 18:32

Tokic úr Ægi í Árborg (Staðfest)

<p>Það voru stórar fréttir að berast frá Suðurlandi þar sem framherjinn öflugi Hrvoje Tokic er búinn að semja við Árborg í titilbaráttu 4. deildar. Hann semur við félagið út tímabilið.</p>

FRÉTTIR21.07.2023, 17:34

Aubameyang kominn til Marseille (Staðfest)

<p>Franska félagið Marseille hefur staðfest komu Pierre-Emerick Aubameyang frá Chelsea, en hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við enska stórveldið.</p>

FRÉTTIR21.07.2023, 17:30

Livermore til Watford (Staðfest)

Watford hefur komist að samkomulagi við Jake Livermore um að ganga í raðir félagsins. Þessi fyrrum enski landsliðsmaður kemur á frjálsri sölu til Watford þar sem samningur hans við WBA rann út í sumar.

FRÉTTIR21.07.2023, 12:00

Redmond til Burnley (Staðfest)

Burnley hefur staðfest kaup á vængmanninum Nathan Redmond sem hefur gert tveggja ára samning eftir að hann yfirgaf Besiktas í sumar. Þessi 29 ára leikmaður skoraði sex mörk í 28 leikjum á síðasta tímabili og er með mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa spilað sjö tímabil fyrir Southampton í deildinni.

FRÉTTIR21.07.2023, 06:00

Afturelding fær tvo leikmenn (Staðfest)

Kvennalið Aftureldingar hefur styrkt sig fyrir seinni hluta tímabilsins með tveimur leikmönnum en Lilja Björk Unnarsdóttir er komin á láni frá Selfossi og þá er Meghan Callahan Root mætt frá Bandaríkjunum.

FRÉTTIR20.07.2023, 17:25

City selur Trafford til Burnley (Staðfest)

Burnley hefur staðfest kaup á James Trafford frá Manchester City. Kaupverðið er óuppgefið og skrifar markvörðurinn undir fjögurra ára samning á Turf Moor. Hann er fjórði leikmaðurinn sem nýliðarnir fá í sínar raðir í sumar. Trafford er uppalinn hjá City og hefur síðustu tímabil verið lánaður til Accrington og Bolton. Hann var valinn besti ungi leikmaður tímabilsins hjá Bolton og vann neðri deilda bikarinn með liðinu. Á dögunum varð hann svo Evrópumeistari með U21 landsliði Englands. Hann hélt sex sinnum hreinu í mótinu og varði vítaspyrnu í uppbótartíma í úrslitaleiknum sem sá til þess að England vann keppnina.

FRÉTTIR20.07.2023, 16:00

Matt Doherty aftur heim í Wolves (Staðfest)

Matt Doherty er mættur aftur til Wolves eftir þriggja ára fjarveru. Hann kemur á frjálsri sölu frá Atletico Madrid. Hann fór til Tottenham sumarið 2020 fyrir rúmlega þrettán milljónir punda. Hann hafi verið í Wolves í tíu ár þegar kallið kom frá Spurs og stökk sá írski á tækifærið. Hann spilaði 71 leik fyrir Tottenham og skoraði þrjú mörk á tveimur og hálfu í London. Í janúar var hann svo látinn fara á frjálsri sölu til Atletico Madrid á Spáni en þar spilaði hann einungis tvo leiki.

FRÉTTIR20.07.2023, 15:49

Luton búið að kaupa Marvelous Nakamba (Staðfest)

Nýliðar Luton Town í ensku úrvalsdeildinni hafa keypt Marvelous Nakamba frá Aston Villa. Þessi 29 ára varnartengiliður var lánaður til Luton í janúar og hjálpaði liðinu að tryggja sér sæti í deild þeirra bestu.

FRÉTTIR20.07.2023, 09:37

Milos Kerkez til Bournemouth (Staðfest)

Bournemouth hefur keypt ungverska vinstri bakvörðinn Milos Kerkez frá AZ Alkmaar. Þessi 19 ára leikmaður hefur skrifað undir langtímasamning.

FRÉTTIR20.07.2023, 09:24

Haukur fylgir bróður sínum til Lille (Staðfest)

Haukur Andri Haraldsson er genginn til liðs við lið Lille í Frakklandi, líkt og bróðir hans Hákon Arnar. Haukur er sautján ára, fæddur árið 2005, og kemur upp úr yngri flokka starfi ÍA. Hann spilaði sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk ÍA í Bestu deildinni í fyrra og eru meistaraflokks leikirnir samtals orðnir 35 og mörkin fjögur. Lokaleikur Hauks fyrir ÍA var leikur við Vestra í Lengjudeildinni um síðustu helgi. Hann skrifaði undir samning við Lille til 2026 eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Bróðir Hauks, Hákon Arnar, gekk í raðir Lille á dögunum eins og mikið hefur verið fjallað um. Hákon var keyptur fyrir háa upphæð frá FC Kaupmannahöfn þar sem hann hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu.

FRÉTTIR20.07.2023, 07:40

Valgeir Árni í Leikni (Staðfest)

<p>Leiknir R. er búinn að krækja sér í Valgeir Árna Svansson, 25 ára varnarmann sem kemur úr röðum Fylkis.</p>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.