Aubameyang kominn til Marseille (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Franska félagið Marseille hefur staðfest komu Pierre-Emerick Aubameyang frá Chelsea, en hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við enska stórveldið.
Aubameyang, sem er 34 ára gamall og gerir þriggja ára samning við Marseille, tekur á sig gríðarlega launalækkun til að skipta yfir í franska boltann. Hann var með tilboð á borðinu frá Sádí-Arabíu en hafði ekki áhuga á að flytja burt frá Evrópu.
Aubameyang var lengi einn af bestu framherjum fótboltaheimsins þar sem hann raðaði inn mörkum fyrir Borussia Dortmund og Arsenal áður en hann gekk í raðir Barcelona og hélt svo til Chelsea.
Auba var iðinn við markaskorun á hálfu ári hjá Börsungum, en þeir neyddust svo til að selja hann til Chelsea eftir gott kauptilboð síðasta haust.
Hann fann sig aldrei hjá Chelsea og hefur nú nýjan kafla á ferlinum. Hjá Marseille mun hann spila með öðrum reynslubolta sem heitir Alexis Sanchez.
Aubameyang er þriðji leikmaðurinn til að ganga í raðir Marseille í sumar eftir Renan Lodi og Geoffrey Kondogbia sem komu úr röðum Atletico Madrid.
Kaupverðið er óuppgefið en taldar eru miklar líkur á að Aubameyang hafi fengið að yfirgefa Chelsea á frjálsri sölu til að lækka launakostnaðinn hjá félaginu.





