Fotbolti.net
20.07.23 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Leipzig fær Simons og Bitshiabu frá PSG (Staðfest)

Leipzig fær Simons og Bitshiabu frá PSG (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

RB Leipzig er búið að kynna hollenska ungstirnið Xavi Simons til leiks á eins árs lánssamningi frá PSG, án kaupmöguleika.

Simons átti magnað tímabil með PSV Eindhoven í hollenska boltanum á síðustu leiktíð og ákvað PSG að nýta endurkaupsrétt sinn á leikmanninum í kjölfarið.

Simons var ekki spenntur fyrir að vera varamaður hjá PSG og fær því að fara til Leipzig á láni.

Simons er aðeins 20 ára gamall en á 5 A-landsleiki að baki fyrir Holland, eftir að hafa komið með beinum hætti að 28 mörkum í 34 deildarleikjum á síðustu leiktíð.

Hann leikur sem sóknartengiliður en er einnig öflugur kantmaður.

Þá er Leipzig einnig búið að staðfesta félagaskipti El Chadaille Bitshiabu, sem var yngsti leikmaður í sögu PSG áður en Warren Zaïre-Emery bætti metið.

Bitshiabu er aðeins 18 ára gamall og er hugsaður sem arftaki Josko Gvardiol í hjarta varnarinnar.

Leipzig borgar 15 milljónir evra fyrir, auk árangurstengdra aukagreiðslna sem gætu farið með kaupverðið upp í 20 milljónir. PSG heldur 25% endursölurétti og gæti því hagnast enn frekar á varnarmanninum í framtíðinni.

Bitshiabu, sem á 18 leiki fyrir unglingalandslið Frakklands, kom við sögu í 16 leikjum með aðalliði PSG á síðustu leiktíð.

Leipzig fær Simons og Bitshiabu frá PSG (Staðfest)
Canon

Mynd: Paris Saint-Germain

Leipzig fær Simons og Bitshiabu frá PSG (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.