Fotbolti.net
21.07.23 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Livermore til Watford (Staðfest)

Livermore til Watford (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Watford hefur komist að samkomulagi við Jake Livermore um að ganga í raðir félagsins.

Þessi fyrrum enski landsliðsmaður kemur á frjálsri sölu til Watford þar sem samningur hans við WBA rann út í sumar.
Livermore er 33 ára gamall og skrifar undir eins árs samning á Vicarage Road. Hann hefur æft með liðinu að undanförnu og ákvað í kjölfarið að skrifa undir samning.

Livermore er uppalinn hjá Tottenham en hefur einnig leikið með MK Dons, Derby, Peterborough, Ipswich, Leeds, Hull og WBA á sínum ferli. Hann lék sjö A-landsleiki á árunum 2012-17.

Hann hefur skorað 21 mark í 465 leikjum með félagsliðum sínum á ferlinum.

Watford endaði í 11. sæti ensku Championship deildarinnar í fyrra, þremur stigum á eftir WBA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.