Fotbolti.net
20.07.23 - 18:04
Brynjar Ingi Erluson

André Onana til Manchester United (Staðfest)

André Onana til Manchester United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kamerúnski markvörðurinn André Onana er genginn til liðs við Manchester United frá Inter. Enska félagið kynnti leikmanninn nú rétt í þessu.
Viðræður United og Inter tóku dágóðan tíma en á dögunum náðist samkomulag.

United greiðir tæpar 48 milljónir punda fyrir leikmanninn og skrifaði hann undir langtímasamning í dag.

Onana er nú á leið til Bandaríkjanna þar sem hann mun hitta leikmannahópinn sem undirbýr sig fyrir komandi tímabil.

Það verða endurfundir hjá Onana og Erik ten Hag, stjóra United, en þeir unnu saman hjá Ajax í Hollandi.

Þetta eru önnur kaup United í sumar á eftir Mason Mount sem kom til félagsins frá Chelsea fyrir 60 milljónir punda. Jonny Evans kom þá á frjálsri sölu frá Leicester.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.