Fotbolti.net
21.07.23 - 16:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sölvi Stefánsson frá Víkingi til AGF (Staðfest)

Víkingur hefur selt varnarmanninn Sölva Stefánsson til Danmerkur.

Víkingur hefur selt varnarmanninn Sölva Stefánsson til Danmerkur.

Canon

Mynd: Víkingur Reykjavík

Víkingur hefur staðfest að félagið sé búið að selja varnarmanninn Sölva Stefánsson til AGF í Danmörku þar sem hann mun æfa og spila með unglingaakademíu félagsins.
Sölvi er einn efnilegasti hafsent landsins og er uppalinn Víkingur. Sölvi hóf fótboltaferilinn sinn með Víking og hefur leikið upp alla yngri flokka Víkings.

Sölvi er hávaxinn miðvörður sem á að baki átta leiki fyrir U17 landslið Íslands og tvo leiki fyrir U16 landslið Íslands.

Hann er fæddur árið 2007 og er 16 ára gamall. Hann hefur í sumar komið við sögu í einum leik með meistaraflokki Víkinga en það var bikarleikur gegn Magna.

„Sölvi er mikil fyrirmynd fyrir yngri iðkenndur Víkings og hefur sinnt fjölmörgum störfum fyrir knattspyrnufélagið bæði innan sem utan vallar og þökkum við Sölva kærlega fyrir framtak hans til félagsins og óskum honum góðs gengis hjá AGF," segir í tilkynningu Víkings.

Sjá einnig:
Íslenskur miðvörður á leið til AGF - Kári hrósar honum í hástert
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.