Milos Kerkez til Bournemouth (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bournemouth hefur keypt ungverska vinstri bakvörðinn Milos Kerkez frá AZ Alkmaar. Þessi 19 ára leikmaður hefur skrifað undir langtímasamning.
Fyrr í sumar hafði Bournemouth keypt hollenska framherjann Justin Kluivert frá Roma og miðjumanninn Romain Faivre frá Lyon en báðir eru 24 ára.
Neill Blake framkvæmdastjóri Bournemouth lýsir Kerkez sem miklum íþróttamanni og öflugum sóknarbakverði. Hann eigi alla möguleika á því að bæta sig enn frekar.
Kerkez kom til AZ í janúar á síðasta ári en hann var áður í yngri liðum AC Milan. Hann hefur þegar leikið átta landsleiki fyrir Ungverjaland og spilaði allan leikinn þegar liðið vann 1-0 gegn Þýskalandi í Þjóðadeildinni.
Bournemouth er að búa sig undir sitt fyrsta tímabil undir stjórn Spánverjans Andoni Iraola og á leik gegn West Ham í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar þann 12. ágúst.