Tokic úr Ægi í Árborg (Staðfest)


Mynd: Hulda Margrét


Mynd: Hulda Margrét

Það voru stórar fréttir að berast frá Suðurlandi þar sem framherjinn öflugi Hrvoje Tokic er búinn að semja við Árborg í titilbaráttu 4. deildar. Hann semur við félagið út tímabilið.
Tokic er mikill markahrókur þar sem hann er með 126 mörk í 166 skráðum keppnisleikjum á Íslandi. Hann er þó orðinn 33 ára gamall.
Hann gengur til liðs við Árborg úr röðum Ægis þar sem hann hefur aðeins skorað tvö mörk í tíu leikjum í sumar, en þar áður raðaði hann inn mörkunum með Selfossi.
Tokic lék fyrir Víking Ólafsvík og Breiðablik í efstu deild áður en hann flutti yfir Hellisheiðina.
Tokic fékk að slíta samningi sínum við Ægi í Þorlákshöfn, sem er í fallbaráttu í Lengjudeildinni, og fer að spila í titilbaráttu fjórðu deildarinnar í staðinn. Þar er Árborg í öðru sæti, tveimur stigum eftir toppliði Vængja Júpíters.
„Að fá Tokic til okkar á þessum tímapunkti er frábært fyrir alla, bæði liðið og okkur þjálfarana. Hann æfði með okkur í einn og hálfan mánuð í vetur og þar sýndi hann hvað hann er ótrúlega flottur leikmaður og hann var duglegur að miðla reynslu og gæðum til liðsfélaganna,“ sagði Ingimar Helgi Finnsson, aðstoðarþjálfari Árborgar, í samtali við sunnlenska.
„Þetta er líka vitnisburður um það hvað Árborg er komin langt og stjórnin er að gera frábæra hluti. Tokic veit yfir hvaða gæðum liðið býr yfir. Við spilum skemmtilegan sóknarbolta og það spilaði inn í af hverju hann valdi okkur og treysti okkur fyrir næsta skrefi á sínum ferli."




