Fotbolti.net
21.07.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Keflavík fær öflugan liðsstyrk frá Portúgal (Staðfest)

Keflavík fær öflugan liðsstyrk frá Portúgal (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hertz
Melanie Claire Rendeiro er gengin í raðir Keflavíkur frá portúgalska félaginu Damaiense.
Rendeiro er kanadísk og spilar stöðu miðjumanns en hún er 24 ára gömul.

Á síðasta tímabili hafnaði liðið í 5. sæti deildarinnar en hún þurfti að sætta sig við mikla bekkjarsetu.

Hún byrjaði einungis tvo deildarleiki og lék allt í allt 524 mínútur með liðinu. Áður lék hún fyrir Indiana-háskólann í Bandaríkjunum.

Keflavík er´i 8. sæti Bestu deildarinnar með 12 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.