Fotbolti.net
20.07.23 - 17:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

City selur Trafford til Burnley (Staðfest)

City selur Trafford til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Burnley

Burnley hefur staðfest kaup á James Trafford frá Manchester City. Kaupverðið er óuppgefið og skrifar markvörðurinn undir fjögurra ára samning á Turf Moor.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem nýliðarnir fá í sínar raðir í sumar. Trafford er uppalinn hjá City og hefur síðustu tímabil verið lánaður til Accrington og Bolton. Hann var valinn besti ungi leikmaður tímabilsins hjá Bolton og vann neðri deilda bikarinn með liðinu.

Á dögunum varð hann svo Evrópumeistari með U21 landsliði Englands. Hann hélt sex sinnum hreinu í mótinu og varði vítaspyrnu í uppbótartíma í úrslitaleiknum sem sá til þess að England vann keppnina.
„Ég vil bæta mig og læra eins mikið og ég get hér og að liðið geri slíkt hið sama. Ég vil taka þetta dag frá degi og reyna afreka eins mikið og hægt er í framtíðinni," sagði Trafford við undirskrift.

„Við erum komnir mjög hæfileikaríkan ungan leikmann. Meira en bara hæfileika því hann er með frábæran persónuleika. Við viljum þróa hann enn frekar og gera hann enn betri. Hann er búinn að afreka mikið nú þegar og það er spennandi að sjá hversu langt hann getur farið," sagði stjórinn Vincent Kompany.

Burnley vann Championship deildina í vetur og er því komið aftur upp í deild þeirra bestu á Englandi. Félagið hefur fengið Zeki Amdouni frá Basel, Dara O'Shea frá WBA og Michael Obafemi frá Swansea í sumar.

Trafford, sem er tvítugur, er talinn kosta 15 milljónir punda en verðið getur hækkað upp í 19 milljónir með árangurstengdum gjöldum. Hjá Burnley verður hann liðsfélagi Jóhanns Bergs Guðmundssonar.

City selur Trafford til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Burnley

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.