Fotbolti.net
20.07.23 - 09:24
Elvar Geir Magnússon

Haukur fylgir bróður sínum til Lille (Staðfest)

Haukur Andri Haraldsson.

Haukur Andri Haraldsson.

Canon

Mynd: Lille

Haukur Andri Haraldsson er genginn til liðs við lið Lille í Frakklandi, líkt og bróðir hans Hákon Arnar.

Haukur er sautján ára, fæddur árið 2005, og kemur upp úr yngri flokka starfi ÍA. Hann spilaði sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk ÍA í Bestu deildinni í fyrra og eru meistaraflokks leikirnir samtals orðnir 35 og mörkin fjögur.

Lokaleikur Hauks fyrir ÍA var leikur við Vestra í Lengjudeildinni um síðustu helgi. Hann skrifaði undir samning við Lille til 2026 eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Bróðir Hauks, Hákon Arnar, gekk í raðir Lille á dögunum eins og mikið hefur verið fjallað um. Hákon var keyptur fyrir háa upphæð frá FC Kaupmannahöfn þar sem hann hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu.

Skagamenn gríðarlega stoltir af Hákoni - Hvað verður um peninginn?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.